Menningarsjóður
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróun íslenskrar leiklistar með því að veita leikstjórum styrki til framhaldsnáms, rannsóknarstarfa eða ferðalaga erlendis til að kynna sér það sem efla mætti listþroska þeirra.
Úthlutað er úr menningarsjóði tvisvar á ári, að vori og hausti.
Skilafrestur umsókna er auglýstur í lokuðum Facebook-hópi félaga í FLÍ og í tölvupósti til félaga.
Umsókn:
Til að sækja um í Menningarsjóð, vinsamlega sendið okkur tölvupóst og tilgreinið nafn umsækjanda kennitölu, netfang og símanúmer.
Í umsóknartexta skal gerð nákvæmlega grein fyrir því hvernig styrk skal varið, tímasetningu verkefnis og styrkfjárhæð.
Kostnaðaráætlun skal fylgja umsókn.
Umsóknir sendist á leikstjorar@leikstjorar.is
Innheimtumiðstöð rétthafa - IHM
Félag leikstjóra á Íslandi auglýsir árlega eftir umsóknum um greiðslur úr IHM-sjóði leikstjóra. Greiðslur þessar eru bætur fyrir eintakagerð til einkanota af upptökum á verkum leikstjóra í hljóðvarps- og sjónvarpsmiðlum á Íslandi.
Rétt til umsókna eiga leikstjórar verka sem flutt voru í sjónvarps- og hljóðvarpsmiðlum árið 2020. Rétturinn einskorðast ekki við félagsmenn í FLÍ, heldur gildir um alla leikstjóra sem eiga höfundarétt á sviðssettu/leikstýrðu efni sem hefur verið flutt í hljóðvarpi og sjónvarpi á þessu árabili og fellur undir eintakagerð eins og henni er lýst í 11. gr. höfundalaga nr. 72/1972*:
11. gr.
Heimilt er einstaklingum að gera eintök af birtu verki til einkanota eingöngu, enda sé það ekki gert í fjárhagslegum tilgangi. Ekki má nota slík eintök í neinu öðru skyni. [ … ]
Höfundar verka, sem hefur verið útvarpað, hafa verið gerð aðgengileg almenningi þannig að hver og einn getur fengið aðgang að verkinu á þeim stað, á þeirri stundu og með þeim búnaði er hann sjálfur kýs eða hafa verið gefin út á hljóðriti eða myndriti, eiga rétt á sanngjörnum bótum vegna eftirgerðar verkanna til einkanota. Bæturnar skulu greiðast árlega til samtaka höfundaréttarfélaga með fjárveitingu samkvæmt fjárheimild í fjárlögum. Greiðslan skal fela í sér sanngjarnar bætur fyrir eftirgerð framangreindra verka til einkanota og miðast við […] hlutfallstölur af tollverði á böndum, diskum, plötum eða öðrum þeim geymslumiðlum, í hvaða formi sem er, sem taka má upp á hljóð eða myndir hliðrænt eða stafrænt sem og af tækjum sem eru ætluð til slíkrar upptöku til einkanota sem flutt eru inn eða framleidd hér á landi á næstliðnu ári…
Mikilvægt er að fylla umsóknareyðublaðið út með öllum þeim upplýsingum sem beðið er um til að flýta fyrir úrvinnslu gagna. Aðeins rétt útfylltar umsóknir verða afgreiddar. Vinsamlegast sendið útfyllt umsóknareyðublöð til: FLÍ – Félag leikstjóra á Íslandi, Lindargötu 6, 101 Reykjavík, eða með tölvupósti á leikstjorar@leikstjorar.is